Frestað í Vestmannaeyjum

Ekki verður leikið í Vestmannaeyjum í kvöld.
Ekki verður leikið í Vestmannaeyjum í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Leik Handknattleiksbandalags Heimaeyjar og Þórs frá Akureyri sem fara átti fram í 1. deild karla í handknattleik í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs.

Leikurinn átti að fara fram í Vestmannaeyjum en erfitt er að ferðast þangað vegna slagviðris víða um land.

Í tilkynningu frá mótanefnd HSÍ segir að HBH og Þór muni koma sér saman um nýjan leiktíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert