Haukar og ÍR sannfærandi í bikarnum

Skarphéðinn Ívar Einarsson með boltann.
Skarphéðinn Ívar Einarsson með boltann. mbl.is/Hákon

Haukar og ÍR eru komin áfram í bikarkeppni karla í handbolta í dag. Haukar höfðu betur gegn ÍBV á Ásvöllum, 37:29.

Haukar byrjuðu viðureignina betur og voru fimm mörkum yfir, 11:6, um miðbik fyrri hálfleiks. Eyjamenn svöruðu fyrir sig og náðu að minnka muninn í eitt mark þegar flautað var til hálfleiks, 15:14.

Haukar náðu góðri stjórn á leiknum í síðari hálfleik og unnu að lokum sannfærandi sigur, 37:29.

Össur Haraldsson fór á kostum í liði Hauka og skoraði 13 mörk. Í liði Eyjamanna voru Sigtryggur Daði Rúnarsson og Kári Kristján Kristjánsson markahæstir með sex mörk hvor.

Aron Rafn Eðvarðsson varði 11 skot í marki Hauka eða var með 40% markvörslu. 

ÍR hafði betur á Akureyri

ÍR gerði góða ferð til Akureyrar og lagði Þór, 38:32.

Þórsarar fóru betur af stað og komust mest fimm mörkum yfir í fyrri hálfleik, 9:4. ÍR átti hins vegar góðan lokakafla í fyrri hálfleik og var staðan 17:16 fyrir Þór í leikhléi.

Mikið jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik og var staðan 28:28 þegar rúmar 10 mínútur voru eftir af leiknum. Þá náðu ÍR-ingar tökum á leiknum og unnu að lokum sex marka sigur, 38:32.

Hrannar Ingi Jóhannsson átti stórleik fyrir ÍR en hann skoraði 13 mörk. Brynjar Hólm Grétarsson var markahæstur í liði Þórs með átta mörk.

Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR.
Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR. Ljósmynd/Egill
Róbert Snær Örvarsson skýtur að marki Þórs.
Róbert Snær Örvarsson skýtur að marki Þórs. Ljósmynd/Egill
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert