Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hefur valið þá 35 leikmenn sem koma til greina á heimsmeistaramót karla í handknattleik sem haldið verður í Króatíu, Danmörku og Noregi næstkomandi janúar.
Af þeim 35 munu 18 vera í lokahópnum og detta því 17 leikmenn út.
Landsliðið kemur saman til æfinga á Íslandi 2. janúar og heldur liðið svo til Svíþjóðar 8. janúar. Liðið leikur þar tvo vináttulandsleiki gegn Svíum 9. og 11. janúar í Kristianstad og Malmö áður en haldið verður til Zagreb í Króatíu, þar sem Ísland leikur riðil sinn.
Eftirfarandi leikmenn eru í hópnum:
Markverðir:
Ágúst Elí Björgvinsson, Ribe-Esbjerg (52/3)
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (273/24)
Daníel Freyr Andrésson, FH (2/0)
Ísak Steinsson, Drammen (0/0)
Viktor Gísli Hallgrímsson, Wisla Plock (60/1)
Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson, Veszprém (118/401)
Dagur Gautason, Arendal (0/0)
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (16/41)
Stiven Tobar Valencia, Benfica (17/18)
Vinstri skytta:
Andri Már Rúnarsson, Leipzig (2/0)
Aron Pálmarsson, Veszprém (177/674)
Daníel Þór Ingason, Bailingen (39/11)
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (21/24)
Elvar Örn Jónsson, Melsungen (79/183)
Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (5/10)
Leikstjórnendur:
Benedikt Gunnar Óskarsson, Kolstad (3/0)
Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (62/139)
Haukur Þrastarson, Dinamo Búkarest (35/50)
Janus Daði Smárason, Pick Szeged (86/146)
Reynir Stefánsson, Fram (0/0)
Hægri skytta:
Arnór Snær Óskarsson, Rhein-Neckar Löwen (2/0)
Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg (33/61)
Ómar Ingi Magnússon, Magdeburg (88/317)
Teitur Örn Einarsson, Flensburg (36/36)
Viggó Kristjánsson, Leipzig (59/165)
Hægra horn:
Birgir Már Birgisson, FH (0/0)
Jóhannes Berg Haraldsson, FH (0/0)
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten (42/130)
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (76/214)
Línumenn og vörn:
Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (100/101)
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia (14/5)
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (50/109)
Sveinn Jóhannsson, Kolstad (14/24)
Tjörvi Týr Gíslason, Bergischer (0/0)
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (92/36)