Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson var valinn maður leiksins er hann og liðsfélagar hans í Veszprém frá Ungverjalandi sigruðu Wisla Plock frá Póllandi í Íslendingaslag í Meistaradeild Evrópu í handbolta í gærkvöldi, 30:26.
Aron skoraði sex mörk fyrir Veszprém og gaf auk þess þrjár stoðsendingar. Aron gekk á dögunum aftur í raðir Veszprém frá uppeldisfélagi sínu FH.
Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk fyrir Veszprém og Viktor Gísli Hallgrímsson varði fimm skot í marki Wisla Plock.