Lið Arnórs vann Íslendingaslaginn

Arnór Atlason.
Arnór Atlason. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Holstebro, undir stjórn Arnórs Atlasonar, hafði betur gegn Ribe-Esbjerg, 39:30, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í Holstebro í kvöld. 

Holstebro er með 13 stig í sjötta sæti dönsku deildarinnar eftir tólf leiki en Ribe-Esbjerg er í 13. og næstneðsta sæti með þrjú stig. 

Ágúst Elí Björgvinsson varði þrjú skot í liði Ribe-Esbjerg en Elvar Ásgeirsson skoraði ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert