Íslendingarnir fóru mikinn í sigri Noregsmeistara Kolstad á Kristiansand, 37:25, í handknattleik karla í Þrándheimi í dag.
Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði sex mörk, Sveinn Jóhannsson þrjú og Sigvaldi Björn Guðjónsson eitt fyrir Kolstad.
Kolstad-liðið er í öðru sæti norsku deildarinnar með tíu sigra og eitt tap eftir ellefu leiki.