Valinn í lið umferðarinnar

Elvar Örn Jónsson skýtur að marki Vals í leik Melsungen …
Elvar Örn Jónsson skýtur að marki Vals í leik Melsungen og Vals í Evrópudeildinni fyrr í vetur. Ljósmynd/Melsungen

Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handknattleik, er í úrvalsliði 11. umferðar þýsku 1. deildarinnar sem fram fór um síðustu helgi.

Lið hans, Melsungen, er á toppi deildarinnar með níu sigra úr ellefu umferðum en tapaði þó óvænt fyrir Eisenach um helgina, 32:31.

Elvar er valinn í liðið þrátt fyrir það en hann skoraði fjögur mörk í leiknum og átti fjórar stoðsendingar fyrir Melsungen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert