Matareitrun herjar á Íslendingaliðið

Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach.
Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach. Ljósmynd/Gummersbach

Leik Gummersbach og Rhein-Neckar Löwen í efstu deild þýska handboltans hefur verið frestað vegna veikinda í herbúðum Íslendingaliðs Gummersbach. Átti leikurinn að fara fram annað kvöld. 

Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson eru leikmenn Gummersbach og Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins.

Gummersbach lék við Sävehof frá Svíþjóð í Evrópudeildinni í gærkvöldi og urðu einhverjir leikmenn þýska liðsins eftir í Svíþjóð þar sem þeir höfðu ekki heilsu til að fljúga til baka.

Þeir sem urðu eftir fljúga væntanlega heim til Þýskalands í kvöld og fara beint í læknisskoðun, samkvæmt heimasíðu Gummersbach.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka