Snorri hefur valið hópinn fyrir HM

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari.
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í handknattleik, tilkynnti í dag hópinn fyrir heimsmeistaramótið sem haldið verður í janúar en Ísland mætir þar Grænhöfðaeyjum í fyrsta leiknum í Zagreb í Króatíu 16. janúar.

Ómar Ingi Magnússon er ekki í hópnum vegna meiðsla en Teitur Örn Einarsson er í hópnum í hans stað. Þá kemur Arnar Freyr Arnarsson inn í hópinn á ný í stað Sveins Jóhannssonar sem var með í leikjunum í undankeppni EM fyrr í vetur.

Átján manna hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Val
Viktor Gísli Hallgrímsson, Wisla Plock

Hornamenn:
Bjarki Már Elísson, Veszprém
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad

Línu- og varnarmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach
Ýmir Örn Gíslason, Göppingen

Skyttur og miðjumenn:
Aron Pálmarsson, Veszprém
Elvar Örn Jónsson, Melsungen
Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto
Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg
Haukur Þrastarson, Dinamo Búkarest
Janus Daði Smárason, Pick Szeged
Teitur Örn Einarsson, Gummersbach
Viggó Kristjánsson, Leipzig

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert