Öðrum leik frestað vegna árásarinnar

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson í leik með …
Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson í leik með Magdeburg. Ljósmynd/Aleksandar Djorovic

Öðrum leik karlaliðs Magdeburg í þýsku 1. deildinni í handknattleik hefur verið frestað vegna mannskæðrar árásar á jólamarkað í borginni fyrir helgi.

Fimm létust og 200 særðust, þar af 41 alvarlega, þegar Taleb Jawad al Abdulmoh­sen ók BMW-bifreið sinni inn í mannfjölda á jólamarkaði í Magdeburg á föstudagskvöld.

Af þeim sökum var leik Magdeburg gegn Eisenach í deildinni, sem átti að fara fram í gær, frestað.

Í dag tilkynnti félagið ásamt þýsku deildinni að öðrum leik liðsins hefði verið frestað, leik gegn Erlangen sem átti að fara fram á öðrum degi jóla næstkomandi fimmtudag.

Íslensku landsliðsmennirnir Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon leika báðir með Magdeburg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert