Haukar yfir í einvíginu

Elín Klara Þorkelsdóttir og samherjar hennar í Haukum mæta Galychanka …
Elín Klara Þorkelsdóttir og samherjar hennar í Haukum mæta Galychanka tvívegis um helgina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukar sigruðu Galychanka Lviv frá Úkraínu, 26:24, í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handknattleik á Ásvöllum í dag.

Haukar byrjuðu leikinn vel og voru 2:0 yfir eftir fimm mínútur en Galychanka-konur jöfnuðu metin og staðan var 5:5 þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Galychanka var skrefi á undan en Haukar enduðu fyrri hálfleik vel og voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 12:9, eftir sterkan varnarleik og Galychanka skoruðu ekki mark síðustu sex mínútur fyrri hálfleiks. 

Seinni hálfleikur var kaflaskiptur en Galychanka byrjaði betur og jafnaði metin í 13:13 þegar fjórar mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Þá hrukku Haukar í gang og komust fjórum mörkum yfir, 18:14, en skoruðu svo ekki í átta mínútur og Galychanka jöfnuðu metin.

Leikurinn var spennandi undir lokin og staðan var 22:22 þegar fimm mínútur voru eftir en Haukar voru sterkari undir lokin og eru tveimur mörkum yfir í einvíginu, 26:24.

Liðin mætast aftur á Ásvöllum á morgun klukkan 17 og þá kemur í ljós hvort þeirra kemst í átta liða úrslit keppninnar.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Svíþjóð 26:24 Ísland opna
60. mín. Þorsteinn Leó Gunnarsson (Ísland) skoraði mark 25 sekúndur eftir.

Leiklýsing

Galychanka 24:26 Haukar opna loka
60. mín. Haukar tekur leikhlé Mjög spennandi lokamínútur, 46 sekúndur eftir af leiknum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert