Dana stórgóð í sigri

Dana Björg Guðmundsdóttir.
Dana Björg Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Jon Forberg

Landsliðskonan Dana Björg Guðmundsdóttir lét að sér kveða með Volda er liðið vann góðan sigur gegn Utleira, 29:24, í norsku B-deildinni í handknattleik í dag.

Dana Björg skoraði fjögur mörk fyrir Volda úr níu skotum.

Volda er á toppi deildarinnar með 27 stig eftir 15 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert