Haukar eru komnir í átta liða úrslit

Sara Odden skýtur að marki í leiknum í dag.
Sara Odden skýtur að marki í leiknum í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

Haukar eru komnir í átta liða úrslit í Evr­ópu­bik­ar kvenna í hand­bolta eftir 24:22-sigur á úkraínska liðinu Ga­lychankaLviv á Ásvöllum í dag.

Liðin mættust í fyrri leiknum í gær og Haukar unnu hann 26:24 og einvígið því 50:46.

Haukar voru skrefi á undan í upphafi leiks en Ga­lychanka komst yfir, 9:8, þegar tíu mínútur voru eftir af hálfleiknum. Haukar tóku yfir leikinn á lokamínútunum fyrri háfleiks þrátt fyrir að vera á tímapunkti tveimur færri og voru 13:10 yfir í hálfleik.

Haukar voru með yfirburði í seinni hálfleik og Ga­lychanka skoraði ekki fyrr en á 37. mínútu en þá voru þrettán mínútur frá síðasta marki þeirra. Haukar komust mest níu mörkum yfir og rúlluðu liðinu undir lokin.

Ga­lychanka-konur minnkuðu muninn í tvö mörk undir lok leiks en Haukar héldu út og fara í átta liða úrslit. Dregið verður í næstu viku.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Arsenal 4:6 Man. United opna
121. mín. Bruno Fernandes (Man. United) skorar úr víti 0:1 - Afar öruggur. Raya í vitlaust horn.

Leiklýsing

Haukar 24:22 Galychanka opna loka
60. mín. Vanessa Lakatosh (Galychanka) rautt spjald
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert