Það var sannkallaður stórleikur í 12. umferð Íslandsmóts kvenna í handbolta í kvöld þegar Haukar og Valur áttust við en leiknum lauk með 5 marka sigri Haukakvenna 28:23.
Eftir leikinn eru Valskonur áfram á toppnum með 22 stig en Haukar eru í öðru sæti með 18 stig. Þess skal þó getið að Fram á leik til góða gegn ÍR á föstudag og geta jafnað Hauka að stigum.
Það var skorað að meðaltali eitt mark á mínútu í fyrri hálfleik hjá liðunum. Þórey Anna Ásgeirsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins úr víti fyrir Val en Haukakonur svöruðu strax með marki.
Eftir það var aldrei meira en eins marks munur á liðunum ef frá er skilinn örstuttur kafli þar sem Haukakonur náðu þriggja marka forskoti í stöðunni 6:3.
Haukar leiddu mest allan fyrri hálfleikinn með einu marki. Fyrri hluta hálfleiksins var vörn Huakakvenna gríðarlega þétt og áttu Valskonur í stökustu vandræðum með að brjótast í gegn. Það virtist síðan snúast við undir lok hálfleiksins þegar Valskonur þéttu raðirnar og þurftu Haukakonur oft að keppast við að ná skoti áður en þeir Sigurður Hjörtur og Svavar Ólafur dæmdu leiktöf á heimaliðið.
Haukar náðu iðulega eins marks forskoti sem að Valskonur jöfnuðu ítrekað. Þegar 15 sekúndur voru eftir far fyrri hálfleik skoraði Rakel Oddný Guðmundsdóttir fyrir Hauka úr vinstra horninu en Þórey Anna Ásgeirsdóttir jafnaði um hæl með glæsilegu undirhandarskoti.
Staðan í hálfleik jöfn, 15:15.
Rut Jónsdóttir skoraði 5 mörk í fyrri hálfleik fyrir Hauka en Þórey Anna Guðmundsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Valskonur og voru 3 markanna úr vítaskotum.
Þær Margrét Einarsdóttir og Sara Sif Helgadóttir vörðu þrjú skot hvor í marki Hauka en Hafdís Renötudóttir varði 5 skot í marki Vals.
Áður en seinni hálfleikur byrjaði fékk Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals gult spjald. Fyrir hvað veit undirritaður ekki.
Haukar skoruðu fyrsta mark seinni hálfleiks og var það Rut Jónsdóttir sem var með sitt sjötta mark. Haukakonur gerðu betur og skoruðu fyrstu þrjú mörk hálfleiksins og komust í 18:15 áður en Sigríður Hauksdóttir skoraði fyrsta mark Valskvenna í seinni hálfleik.
Haukakonur náðu aftur þriggja marka forskoti í stöðunni 20:17 og þá tók Ágúst Þór leikhlé fyrir Val líkt og hann gerði í sömu stöðu í fyrri hálfleik.
Þrátt fyrir að leikur Valskvenna hafi batnað eftir leikhlé þá náðu Haukakonur fjögurra marka forskoti með marki frá Elínu Klöru Þorkelsdóttur og staðan 22:18.
Elín Klara kom Haukum fimm mörkum yfir í stöðunni 24:19 og 8 mínútur eftir af leiknum. Stefndi allt í fyrsta tap Vals á leiktíðinni. Aftur tóku Valskonur leikhlé til að endurskipuleggja leik sinn.
Það dugði ekki til og má segja að Valskonur hafi mölbrotnað á lokakafla leiksins því Haukakonur náðu 7 marka forskoti í stöðunni 28:21 og fyrsta tap Valskvenna í vetur staðreynd.
Markahæst í liði Hauka var Elín Klara Þorkelsdóttir með 10 mörk. Rut Jónsdóttir var með 8 mörk. Sara Sif Helgadóttir er maður leiksins en hún varði 16 skot og Margrét Einarsdóttir 4 skot, þar af eitt vítaskot.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir skoraði 7 mörk, þar af 5 úr vítaskotum. Hafdís Renötudóttir átti finan leik og varði 11 skot.