Aldís Ásta Heimisdóttir og samherjar hennar í Skara unnu í kvöld afar mikilvægan útisigur gegn toppliði sænsku úrvalsdeildarinnar, Sävehof.
Skara vann leikinn 32:27 og er nú komið með 20 stig í þriðja sætinu en Sävehof og Skuru eru með 22 stig í tveimur efstu sætunum.
Aldís lét talsvert að sér kveða og skoraði fjögur mörk í leiknum og átti auk þess eina stoðsendingu.