Lætur hjartað ráða

Þórir Hergeirsson
Þórir Hergeirsson mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórir Hergeirsson, sigursælasti landsliðsþjálfari sögunnar, sótti leik Danmerkur og Brasilíu á HM karla í handbolta í gærkvöldi.

Norska ríkissjónvarpið var á leiknum og ræddi við Þóri um framtíðina en Þórir hætti með norska kvennalandsliðið eftir ótrúlegt fimmtán ára starf sem aðalþjálfari um áramótin.

„Mér líður vel núna og þetta var rétt ákvörðun að hætta. Nú hef ég tíma í aðra hluti. Ég læt síðan hjartað ráða þegar ég skoða næstu skref. Ég er ekkert að flýta mér,“ sagði Þórir.

Hann hefur m.a. verið orðaður við danska kvennalandsliðið en hann hefur ekki áhuga á starfinu.

„Ég hef sagt það áður að það er ekki að fara að gerast,“ sagði hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert