Pólski handknattleiksmaðurinn Kamil Pedryc hefur yfirgefið herbúðir KA. Hann gekk til liðs við Akureyringa síðastliðið sumar.
Handbolti.is greinir frá því að Pedryc sé snúinn aftur til Zaglebie Lubin í heimalandinu, þaðan sem hann kom til KA.
Pedryc skoraði 13 mörk í 12 leikjum með KA í úrvalsdeildinni á fyrri hluta tímabilsins.