Seinkað í úrvalsdeildinni

Katla María Magnúsdóttir í leik með Selfossi gegn Fram í …
Katla María Magnúsdóttir í leik með Selfossi gegn Fram í nóvember síðastliðnum. Ljósmynd/Guðmundur Karl

Leik Fram og Selfoss í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, sem hefjast átti klukkan 18.30 í kvöld, hefur verið seinkað um tvær klukkustundir vegna veðurskilyrða.

Hellisheiðin er enn lokuð og því er ekki fært milli Selfoss og Reykjavíkur sem stendur, en leikurinn fer fram í íþróttahúsi Fram í Úlfarsárdal.

Í tilkynningu frá HSÍ segir að vonir standi til að opnað verði fyrir umferð fljótlega svo leikurinn geti farið fram.

Áætlað er að leikurinn hefjist klukkan 20.30 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert