Handknattleiksmaðurinn Þorgils Jón Svölu Baldursson hefur gert samkomulag við uppeldisfélagið Val og gert við það tveggja og hálfs árs samning.
Þorgils kemur til Vals frá Karlskrona í Svíþjóð, þar sem hann hefur verið undanfarið eitt og hálft ár.
Línumaðurinn hafði leikið með Val allan ferilinn þegar hann skipti yfir til Svíþjóðar og unnið fjölda titla með Hlíðarendafélaginu.