„Ég held að hver einasti leikmaður geti sagt þér það,“ sagði Arnar Freyr Arnarsson, landsliðsmaður Íslands í handknattleik og leikmaður Melsungen í Þýskalandi, í Dagmálum.
Arnar Freyr, sem er 28 ára gamall, tognaði aftan í læri í vináttulandsleik gegn Svíþjóð í Kristianstad, viku áður en íslenska landsliðið hóf leik á HM í Króatíu, Danmörku og Noregi og þurfti af þeim sökum að draga sig úr leikmannahóp Íslands á mótinu.
Ólíkt öðrum þjóðum í handboltanum fá leikmenn íslenska karlalandsliðsins ekkert greitt fyrir þátttöku sína á stórmótum, þrátt fyrir að leggja líkama sinn og sál að veði.
„Eins og ég kom inn á áðan þá eru allir að gera sig tilbúna fyrir janúarmánuð, að spila á stórmóti,“ sagði Arnar Freyr.
„Við fáum ekkert greitt fyrir þetta en það er samt ekkert skemmtilegra en að koma saman, hitta liðsfélagana í landsliðinu og að spila fyrir Íslands hönd. Það er stærra en allt annað, fyrir mig allavega.
Við þurftum að borga sjálfir fyrir yngri landsliðsferðirnar á meðan hin liðin fengu þetta frítt og mögulega bónusa fyrir að enda í ákveðnum sætum. Við erum að gera þetta fyrir Ísland og það er eitthvað inn í okkur sem segir okkur það að við þurfum að gera eitthvað fyrir þjóðina,“ sagði Arnar Freyr meðal annars.