Vel á verði í Ísrael

Sveinbjörn Pétursson í leik með Stjörnunni á sínum tíma.
Sveinbjörn Pétursson í leik með Stjörnunni á sínum tíma. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Sveinbjörn Pétursson átti stórleik í marki Hapoel Ashdod þegar liðið mátti sætta sig við tap fyrir Maccabi Le Zion, 37:33, í efri hluta efstu deildar Ísraels í handknattleik í kvöld.

Sveinbjörn er í stóru hlutverki hjá Ashdod og varði alls 14 skot í leiknum.

Hann gekk til liðs við félagið í sumar.

Ashdod er í sjötta og neðsta sæti efri hluta deildarinnar með 13 stig eftir 13 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert