FH fyrsta liðið í undanúrslit

Garðar Ingi Sindrason úr FH sækir að marki HK í …
Garðar Ingi Sindrason úr FH sækir að marki HK í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Deild­ar­meist­ar­ar FH eru komn­ir í undanúr­slit Íslands­móts karla í hand­bolta eft­ir útisig­ur á HK, 25:21, í Kórn­um í Kópa­vogi í kvöld. FH vann ein­vígið 2:0.

HK skoraði tvö fyrstu mörk leiks­ins og skoraði FH ekki fyrr en á 7. mín­útu. Tók þá við góður kafli hjá FH-ing­um því staðan var 9:6 þegar rúm­ar tíu mín­út­ur voru eft­ir af fyrri hálfleik.

FH var með und­ir­tök­in það sem eft­ir lifði hálfleiks­ins og voru deild­ar­meist­ar­arn­ir með 2-5 marka for­ystu út hálfleik­inn. Voru hálfleikstöl­ur 13:9.

HK byrjaði seinni hálfleik­inn bet­ur og minnkaði mun­inn í tvö mörk í byrj­un, 14:12. HK fékk nokk­ur tæki­færi til að minnka mun­inn í eitt mark en það tókst ekki. Þess í stað komst FH aft­ur fjór­um mörk­um yfir, 17:13.

Það mynstur end­ur­tók sig nokkr­um sinn­um í seinni hálfleik. HK fékk tæki­færi til að minnka mun­inn í eitt mark, það tókst ekki og FH refsaði. Var staðan 21:17 fyr­ir FH þegar tæp­ar tíu mín­út­ur voru eft­ir og tókst HK ekki að jafna eft­ir það.

Hjörtur Ingi Halldórsson HK-ingur reynir að koma skoti á mark …
Hjört­ur Ingi Hall­dórs­son HK-ing­ur reyn­ir að koma skoti á mark FH í Kórn­um í kvöld. mbl.is/​Eggert
HK 21:25 FH opna loka
Andri Þór Helgason - 6
Hjörtur Ingi Halldórsson - 4
Sigurður Jefferson Guarino - 4
Haukur Ingi Hauksson - 3
Leó Snær Pétursson - 2 / 1
Aron Dagur Pálsson - 1
Kári Tómas Hauksson - 1
Mörk 7 - Jóhannes Berg Andrason
7 / 1 - Ásbjörn Friðriksson
5 - Garðar Ingi Sindrason
2 - Símon Michael Guðjónsson
1 - Jakob Martin Ásgeirsson
1 - Gunnar Kári Bragason
1 - Leonharð Þorgeir Harðarson
1 - Birgir Már Birgisson
Róbert Örn Karlsson - 8
Patrekur Guðni Þorbergsson - 3
Varin skot 12 / 1 - Daníel Freyr Andrésson

6 Mín

Brottvísanir

4 Mín

mín.
60 Leik lokið
FH-ingar fara í undanúrslitin.
60 21 : 25 - Birgir Már Birgisson (FH) skoraði mark
60 21 : 24 - Hjörtur Ingi Halldórsson (HK) skoraði mark
Of lítið og of seint fyrir HK.
60 20 : 24 - Ásbjörn Friðriksson (FH) skoraði mark
Jafnar Jóhannes með sjö mörk.
59 20 : 23 - Hjörtur Ingi Halldórsson (HK) skoraði mark
Hraðaupphlaup. Rúm mínúta eftir.
59 Róbert Örn Karlsson (HK) varði skot
Frá Ágústi.
58 Haukur Ingi Hauksson (HK) skýtur framhjá
FH-ingar eru á leiðinni í undanúrslit.
58 HK tekur leikhlé
HK-ingar skora en dómararnir segja að þeir hafi tekið aukakastið í aðdragandanum eitthvað vitlaust. Þess í stað tekur Halldór Jóhann leikhlé. Rúmar tvær mínútur eftir og fjögurra marka munur.
58 FH tapar boltanum
Eða hvað?
58 Daníel Freyr Andrésson (FH) ver víti
Frá Leó Snæ. Þá ætti þetta að vera komið.
58 Sigurður Jefferson Guarino (HK) fiskar víti
HK verður að nýta þetta til að eiga einhvern möguleika.
57 FH tapar boltanum
57 HK tapar boltanum
Ruðningur á Júlíus.
56 FH tapar boltanum
Vel heppnuð maður á mann vörn hjá HK.
56 19 : 23 - Haukur Ingi Hauksson (HK) skoraði mark
Gefur HK örlitla von.
55 18 : 23 - Jóhannes Berg Andrason (FH) skoraði mark
Fer langt með að skjóta FH í undanúrslitin. Hans sjöunda mark.
55 FH tekur leikhlé
FH-ingar í afar góðri stöðu. Ætla að sigla þessu í höfn.
55 HK tapar boltanum
Ruðningur. Ég er alls ekki viss með þennan dóm. Andri hefði fengið dauðafæri í horninu en dómararnir flautuðu.
54 Róbert Örn Karlsson (HK) varði skot
Frá Ásbirni. Þetta er ekki búið.
53 18 : 22 - Sigurður Jefferson Guarino (HK) skoraði mark
Búinn að spila mjög vel í seinni hálfleik.
52 17 : 22 - Jóhannes Berg Andrason (FH) skoraði mark
Í varnarmann og breytir um stefnu. Róberti til ama.
52 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
Frá Ágústi og FH-ingar komast í kjörstöðu með marki í næstu sókn.
51 HK tekur leikhlé
HK-ingar fengið fjölmörg tækifæri til að minnka muninn í eitt mark en það ekki tekist. Þess í stað er FH aftur með fjögurra marka forskot.
51 17 : 21 - Ásbjörn Friðriksson (FH) skoraði mark
Glæsilegt skot fyrir utan. FH-ingar skynsamari á stóru augnablikunum.
50 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
Frá Benedikt sem var í dauðafæri eftir glæsilega sendingu frá Aroni Degi. Þetta gerði Aron vel.
50 17 : 20 - Garðar Ingi Sindrason (FH) skoraði mark
Hraðaupphlaup eftir enn eina slöku sendinguna frá Aroni Degi. Búinn að kasta boltanum út af eða í hendur FH-inga allt of oft.
40 Róbert Örn Karlsson (HK) varði skot
Frá Jóhannesi og enn fær HK tækifæri til að minnka þetta í eitt mark og gera æsispennandi.
49 17 : 19 - Andri Þór Helgason (HK) skoraði mark
Vel klárað úr vinstra horni eftir sendingu frá Aroni Degi.
48 Daníel Freyr Andrésson (FH) gult spjald
Fyrir mótmæli.
48 Birgir Már Birgisson (FH) fékk 2 mínútur
FH-ingar vægast sagt ósáttir við þetta. Sigurður steinliggur en er í lagi.
47 16 : 19 - Símon Michael Guðjónsson (FH) skoraði mark
Hraðaupphlaup eftir slaka sendingu frá Aroni Degi.
46 Róbert Örn Karlsson (HK) varði skot
Frá Garðari. Glæsileg varsla. HK fær annað tækifæri til að minnka þetta í eitt mark.
46 Styrmir Máni Arnarsson (HK) fékk 2 mínútur
Fór í andlitið á Garðari.
45 16 : 18 - Sigurður Jefferson Guarino (HK) skoraði mark
Gerir vel í að búa sér til pláss og afgreiðir boltann vel í hornið.
44 15 : 18 - Garðar Ingi Sindrason (FH) skoraði mark
Gegnumbrot.
44 HK tapar boltanum
Ruðningur á Hauk.
44 Róbert Örn Karlsson (HK) varði skot
Frá Ásbirni.
43 15 : 17 - Sigurður Jefferson Guarino (HK) skoraði mark
Virkilega vel klárað á línunni.
43 Róbert Örn Karlsson (HK) varði skot
Frá Garðari.
42 14 : 17 - Andri Þór Helgason (HK) skoraði mark
Snöggur að svara fyrir heimamenn.
42 13 : 17 - Símon Michael Guðjónsson (FH) skoraði mark
Hraðaupphlaup. HK gat minnkað muninn í eitt mark rétt áðan. Nú er hann fjögur.
41 13 : 16 - Leonharð Þorgeir Harðarson (FH) skoraði mark
Góð gabbhreyfing og gegnumbrot.
41 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
Frá Hauki. Boltinn fór fyrst í vörnina.
40 FH tapar boltanum
Ruðningur á Ásbjörn.
40 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
Frá Ágústi.
39 FH tapar boltanum
Sóknarbrot og HK getur minnkað muninn í eitt mark.
38 13 : 15 - Haukur Ingi Hauksson (HK) skoraði mark
Hraðaupphlaup. HK neitar að sleppa FH-ingum of langt frá sér.
37 HK tapar boltanum
37 12 : 15 - Jóhannes Berg Andrason (FH) skoraði mark
Sá getur stokkið hátt fyrir utan.
36 12 : 14 - Andri Þór Helgason (HK) skoraði mark
Úr vinstra horni. Fín byrjun hjá HK í seinni.
35 Róbert Örn Karlsson (HK) varði skot
Andri Þór gerir svo virkilega vel í að kasta sér á eftir boltanum og halda honum inn á.
34 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
Frá Sigurði sem var í góðu færi á línunni.
34 FH tapar boltanum
33 11 : 14 - Leó Snær Pétursson (HK) skoraði mark
Vel klárað úr þröngu færi í horninu.
33 10 : 14 - Jóhannes Berg Andrason (FH) skoraði mark
Skot af gólfinu fyrir utan.
32 10 : 13 - Haukur Ingi Hauksson (HK) skoraði mark
Negla fyrir utan. Glæsilegt skot.
32 Ásbjörn Friðriksson (FH) skýtur framhjá
Fast en ekki nógu nákvæmt.
31 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
Frá Leó sem var í frekar litlu jafnvægi.
31 Seinni hálfleikur hafinn
HK byrjar með boltann í seinni.
30 Hálfleikur
HK skoraði tvö fyrstu mörkin en FH svaraði með góðum kafla og deildarmeistararnir eru búnir að vera með undirtökin síðan.
30 FH tapar boltanum
Sóknarbrot á línunni.
30 FH tekur leikhlé
FH-ingar vilja ræða saman fyrir lokakaflann í fyrri.
30 9 : 13 - Sigurður Jefferson Guarino (HK) skoraði mark
Tekur frákastið og skorar níunda mark HK-inga.
30 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
28 8 : 13 - Gunnar Kári Bragason (FH) skoraði mark
Af línunni.
27 Aron Dagur Pálsson (HK) á skot í slá
26 8 : 12 - Jóhannes Berg Andrason (FH) skoraði mark
Negla fyrir utan.
25 HK tapar boltanum
Lína á Sigurð.
25 FH tapar boltanum
Lína á Birgi.
24 8 : 11 - Kári Tómas Hauksson (HK) skoraði mark
Gott gegnumbrot.
24 Róbert Örn Karlsson (HK) varði skot
Frá Ásbirni. Boltinn fór í vörnina fyrst.
23 Styrmir Máni Arnarsson (HK) fékk 2 mínútur
Ýtir Leonharð í gólfið.
23 HK tapar boltanum
22 7 : 11 - Garðar Ingi Sindrason (FH) skoraði mark
Gegnumbrot. FH skorar í hverri sókn.
21 7 : 10 - Andri Þór Helgason (HK) skoraði mark
Galopinn í vinstra horninu.
20 6 : 10 - Ásbjörn Friðriksson (FH) skoraði mark
Af mjög löngu færi. Sá er að spila vel. Róbert Örn Karlsson kemur í markið eftir þetta. Patrekur ekki verið góður síðustu mínútur eftir flotta byrjun.
19 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
Frá Júlíusi.
19 HK (HK) gult spjald
Gult á Halldór Jóhann þjálfara HK fyrir mótmæli.
18 HK tekur leikhlé
Halldór Jóhann vill ræða við sína menn. 4:1-kafli hjá FH-ingum.
18 6 : 9 - Ásbjörn Friðriksson (FH) skoraði mark
Í Patrek og inn. Ásbjörn skorar og skorar.
17 HK tapar boltanum
17 6 : 8 - Ásbjörn Friðriksson (FH) skoraði mark
Svarar strax. Ásbjörn í stuði.
17 6 : 7 - Hjörtur Ingi Halldórsson (HK) skoraði mark
Í Daníel og í netið.
16 5 : 7 - Ásbjörn Friðriksson (FH) skoraði mark
Skot af gólfinu. FH tveimur yfir í fyrsta skipti.
16 HK tapar boltanum
Aron Dagur hittir ekki á samherja.
15 5 : 6 - Ásbjörn Friðriksson (FH) skorar úr víti
Ásbjörn að sjálfsögðu öruggur.
15 Birgir Már Birgisson (FH) fiskar víti
HK-ingar verjast innan teigs.
14 5 : 5 - Andri Þór Helgason (HK) skoraði mark
Úr vinstra horni.
14 Jóhannes Berg Andrason (FH) fékk 2 mínútur
Aðeins of seinn á sér á leiðinni til baka eftir markið.
14 4 : 5 - Jóhannes Berg Andrason (FH) skoraði mark
Gegnumbrot.
14 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
Frá Aroni Degi.
13 Ólafur Gústafsson (FH) gult spjald
Peysutog á línunni.
13 Jakob Martin Ásgeirsson (FH) skýtur framhjá
Vel framhjá úr dauðafæri í hraðaupphlaupi.
12 4 : 4 - Garðar Ingi Sindrason (FH) skoraði mark
Gegnumbrot. Stórt gat á HK-vörninni.
12 4 : 3 - Leó Snær Pétursson (HK) skorar úr víti
Afar öruggur.
12 Sigurður Jefferson Guarino (HK) fiskar víti
Nú er komið að FH-ingum að vera ósáttir. Vilja meina að Sigurður hafi bara klikkað á færinu, óáreittur.
11 3 : 3 - Jakob Martin Ásgeirsson (FH) skoraði mark
Úr vinstra horni.
10 Hjörtur Ingi Halldórsson (HK) fékk 2 mínútur
Er gríðarlega ósáttur. Vill meina að Garðar hafi bara runnið.
10 3 : 2 - Andri Þór Helgason (HK) skoraði mark
Hraðaupphlaup. Glæsileg sending fram hjá Patreki.
10 Patrekur Guðni Þorbergsson (HK) varði skot
9 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
Frá Leó Snæ.
7 2 : 2 - Jóhannes Berg Andrason (FH) skoraði mark
Hraðaupphlaup og allt jafnt.
7 2 : 1 - Garðar Ingi Sindrason (FH) skoraði mark
Gegnumbrot. Loksins mark hjá FH, eftir tæpa sex og hálfa mínútu.
6 2 : 0 - Aron Dagur Pálsson (HK) skoraði mark
Undirhandarskot fyrir utan.
5 Jóhannes Berg Andrason (FH) skýtur framhjá
Slakt undirhandarskot. Gengur illa hjá FH að skora fyrsta markið.
4 Hjörtur Ingi Halldórsson (HK) skýtur framhjá
Gott gegnumbrot en slakt skot.
3 Patrekur Guðni Þorbergsson (HK) varði skot
Frá Jakobi. Glæsileg varsla.
2 1 : 0 - Hjörtur Ingi Halldórsson (HK) skoraði mark
Gott gegnumbrot.
2 Daníel Freyr Andrésson (FH) varði skot
Frá Andra Þór. Boltinn í innkast og HK heldur boltanum.
2 Patrekur Guðni Þorbergsson (HK) varði skot
1 Hjörtur Ingi Halldórsson (HK) gult spjald
Fer aðeins í andlitið á Garðari.
1 Leikur hafinn
FH byrjar með boltann. Vonandi fáum við spennandi leik.
0 Textalýsing
HK í sínum hefðdbundnu rauðu og hvítu treyjum. FH-ingar eru í svörtum útitreyjum.
0 Textalýsing
Flestir búast við sigri deildarmeistaranna í kvöld en það má ekki gleyma að HK vann FH í þessu húsi 12. september, 36:32. FH vann heimaleikinn sinn í deildinni, 30:21.
0 Textalýsing
Liðin eru nú kynnt til leiks yfir fögrum tónum AC/DC. Húsið hristist! Svona á að gera þetta.
0 Textalýsing
FH varð deildarmeistari. Liðið endaði með 35 stig. HK varð í áttunda sæti með 16 stig og rétt skreið inn í úrslitakeppnina.
0 Textalýsing
Velkomin með mbl.is í Kórinn þar sem HK og FH mætast í öðrum leik sínum í átta liða úrslitum Íslandsmóts karla í handbolta. FH vann fyrsta leikinn í Kaplakrika mjög örugglega, 32:21, og er því komið í undanúrslit með sigri í kvöld. Ef HK vinnur leikinn verður oddaleikur í Kaplakrika næsta föstudagskvöld.
Sjá meira
Sjá allt
Dómarar: Ramunas Mikalonis og Þorleifur Árni Björnsson

Gangur leiksins: 1:0, 3:2, 5:6, 6:10, 8:11, 9:13, 11:14, 17:19, 16:18, 17:20, 18:23, 21:25.

Lýsandi: Jóhann Ingi Hafþórsson

Völlur: Kórinn, Kópavogi

HK: Róbert Örn Karlsson (M), Patrekur Guðni Þorbergsson (M). Leó Snær Pétursson, Kári Tómas Hauksson, Elmar Franz Ólafsson, Haukur Ingi Hauksson, Aron Dagur Pálsson, Hjörtur Ingi Halldórsson, Styrmir Hugi Sigurðarson, Tómas Sigurðarson, Styrmir Máni Arnarsson, Sigurður Jefferson Guarino, Benedikt Þorsteinsson, Júlíus Flosason, Andri Þór Helgason, Ágúst Guðmundsson.

FH: Birkir Fannar Bragason (M), Daníel Freyr Andrésson (M). Ágúst Birgisson, Þórir Ingi Þorsteinsson, Ásbjörn Friðriksson, Leonharð Þorgeir Harðarson, Ólafur Gústafsson, Einar Sverrisson, Jakob Martin Ásgeirsson, Gunnar Kári Bragason, Axel Þór Sigurþórsson, Einar Örn Sindrason, Birgir Már Birgisson, Jóhannes Berg Andrason, Garðar Ingi Sindrason, Símon Michael Guðjónsson.

mbl.is

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 4 4 0 0 129:97 32 8
2 Georgía 4 2 0 2 101:103 -2 4
3 Bosnía 4 1 0 3 95:104 -9 2
4 Grikkland 4 1 0 3 95:116 -21 2
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
07.05 18:00 Bosnía : Ísland
08.05 13:00 Georgía : Grikkland
11.05 16:00 Grikkland : Bosnía
11.05 16:00 Ísland : Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert

Handbolti

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Ísland 4 4 0 0 129:97 32 8
2 Georgía 4 2 0 2 101:103 -2 4
3 Bosnía 4 1 0 3 95:104 -9 2
4 Grikkland 4 1 0 3 95:116 -21 2
16.03 Bosnía 20:22 Georgía
15.03 Ísland 33:21 Grikkland
13.03 Georgía 28:26 Bosnía
12.03 Grikkland 25:34 Ísland
10.11 Bosnía 23:22 Grikkland
10.11 Georgía 25:30 Ísland
06.11 Ísland 32:26 Bosnía
06.11 Grikkland 27:26 Georgía
07.05 18:00 Bosnía : Ísland
08.05 13:00 Georgía : Grikkland
11.05 16:00 Grikkland : Bosnía
11.05 16:00 Ísland : Georgía
urslit.net
Fleira áhugavert