Aleix Gómez, hægri hornamaður og leikmaður Barcelona, verður ekki með Spánverjum í lokakeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik í janúar.
Spænska handknattleikssambandið tilkynnti í dag að Gómez hefði ekki jafnað sig af meiðslum á öxl og þjálfarinn Jordi Riberia hefði valið Ferran Solé, leikmann París SG í Frakklandi, í hans stað.
Spánverjar leika í F-riðli keppninnar í Bærum í Noregi og mæta þar Svíum, Japönum og Sílebúum. Í milliriðli bíða þeirra væntanlega Noregur, Portúgal og Brasilía.
Spænska liðið kemur saman í Castellón 2. janúar og mætir Slóvakíu og Argentínu og einu liði í viðbót á sex liða alþjóðlegu móti á Spáni áður en heimsmeistaramótið hefst 14. janúar. Hin liðin á mótinu eru Noregur, Egyptaland og Rúmenía.