Safnar fyrir silfrinu: „Var gert af illri nauðsyn“

„Já og nei, ég fór vitlaust að þessu en þetta er náttúrulega bara hlutur eins og allt annað,“ sagði handknattleiksmaðurinn fyrrverandi Sigfús Sigurðsson í Dagmálum.

Sigfús, sem er 49 ára gamall, er af mörgum talinn einn besti línumaður sem Ísland hefur átt en hann vann til silfurverðlauna með íslenska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008.

Ýmislegt sem gekk á

Árið 2013 veðsetti Sigfús silfurmedalíuna frá Ólympíuleikunum vegna fjárhagsvandræða en málið vakti mikla athygli á sínum tíma.

„Ef ég ætti pening í dag þá myndi ég fara og ná í hana en það safnast hægt og rólega upp í það,“ sagði Sigfús.

Stendur til að kaupa medalíuna aftur?

„Já, hún kemur heim til mín aftur. Við förum ekki út í það hér en það var ýmislegt sem gekk á og var í gangi og þetta var gert af illri nauðsyn,“ sagði Sigfús.

Fékkstu góðan pening fyrir medalíuna?

„Pass,“ bætti Sigfús þá við.

Viðtalið við Sigfús í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Sigfús Sigurðsson með silfurverðlaunin frægu.
Sigfús Sigurðsson með silfurverðlaunin frægu. mbl.is/Brynjar Gauti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert