Vel skreyttir íslenskir stuðningsmenn eru búnir að koma sér fyrir í Arena Zagreb-höllinni í höfuðborg Króatíu þar sem Ísland mætir Kúbu á HM karla í handbolta klukkan 19.30.
Eru flestir stuðningsmennirnir klæddir í blátt og klárir í slaginn.
Eyþór Árnason, ljósmyndari mbl.is og Morgunblaðsins er í höllinni og hann tók meðfylgjandi myndir af stuðningsmönnum.