Egyptar sigraðir og Ísland í toppmálum

Ísland tók risastórt skref í áttina að átta liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í handbolta með sigri á Egyptalandi, 27:24, í fyrsta leik liðanna í milliriðli í Zagreb í kvöld. Ísland er á toppi riðilsins með sex stig, tveimur stigum meira en Egyptaland, Króatía og Slóvenía.

Hefur íslenska liðið unnið alla fimm leiki sína á mótinu til þessa.

Lítið var skorað í upphafi leiks og var Janus Daði Smárason með eina markið fyrstu tæpu sjö mínúturnar. Viktor Gísli Hallgrímsson byrjaði mjög vel í markinu og var staðan 1:0 fram að 7. mínútu þegar Janus breytti stöðunni í 2:0.

Viktor Gísli Hallgrímsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Aron Pálmarsson fagna …
Viktor Gísli Hallgrímsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Aron Pálmarsson fagna vel í leikslok. mbl.is/Eyþór

Egyptar skoruðu næstu tvö mörk og jöfnuðu í 2:2 á 9. mínútu. Ísland náði frumkvæðnu aftur eftir það og Orri Freyr Þorkelsson breytti stöðunni í 5:3 á 13. mínútu. Munurinn varð þrjú mörk í fyrsta skipti í stöðunni 7:4 skömmu síðar.

Liðin skiptust á að skora næstu mínútur. Ísland hélt forystunni, án þess þó að ná að hrista Egyptana af sér. Munurinn varð þó fjögur mörk í fyrsta og eina skiptið í fyrri hálfleik þegar Viggó Kristjánsson skoraði úr víti eftir að leiktíminn rann út.

Gísli Þorgeir Kristjánsson stöðvaður í gegnumbroti í leiknum í kvöld.
Gísli Þorgeir Kristjánsson stöðvaður í gegnumbroti í leiknum í kvöld. mbl.is/Eyþór

Voru hálfleikstölur því 13:9 Íslandi í vil.

Ísland byrjaði seinni hálfleikinn frekar vel og var munurinn fimm mörk eftir tíu mínútur af honum, 19:14. Sem fyrr gekk þó illa að hrista Egypta af sér og munaði þremur mörkum þegar seinni hálfleikur var hálfnaður, 20:17.

Snorri Steinn Guðjónsson og leikmenn á bekknum fagna marki í …
Snorri Steinn Guðjónsson og leikmenn á bekknum fagna marki í kvöld. mbl.is/Eyþór

Íslenska liðið svaraði því með virkilega góðum kafla og náði sex marka forskoti í fyrsta skipti þegar tólf mínútur voru eftir, 24:18. Sem fyrr svöruðu Egyptar og munaði fjórum mörkum þegar níu mínútur voru til leiksloka, 24:20.  

Aron Pálmarsson kom Íslandi í 27:22 þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka og voru Egyptar ekki líklegir til að jafna eftir það.

Viggó Kristjánsson var markahæstur íslenska liðinu með níu mörk og Aron Pálmarsson skoraði átta. Orri Freyr Þorkelsson var næstur með þrjú. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 15 skot í íslenska markinu, þar af eitt víti. 

Janus Daði Smárason sækir að vörn Egypta.
Janus Daði Smárason sækir að vörn Egypta. mbl.is/Eyþór

Næstu leikur Íslands er gegn heimamönnum í Króatíu á föstudagskvöld klukkan 19.30. Dagur Sigurðsson stýrir króatíska liðinu.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Arsenal 3:0 Dinamo Zagreb opna
90. mín. Martin Ødegaard (Arsenal) skorar 3:0 - Þrefaldar forystu Arsenal! Trossard með sendingu fyrir sem fer af varnarmanni og beint á Ödegaard sem potar honum í netið.

Leiklýsing

Ísland 27:24 Egyptaland opna loka
60. mín. Ahmed Hesham (Egyptaland) skoraði mark
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert