HM búið hjá Króatanum

David Mandic sækir að Slóvenum í gær.
David Mandic sækir að Slóvenum í gær. AFP/Anne-Christie Poujoulat

Króatíski handboltamaðurinn David Mandic hefur lokið leik á heimsmeistaramótinu í Króatíu, Danmörku og Noregi.

Þetta tilkynnti leikmaðurinn eftir þriggja marka sigur Króata gegn Slóveníu, 29:26, í milliriðli fjögur í Zagreb í gær en fingur Mandic fór úr lið í leiknum í gær.

Króatinn lék þó leikinn á enda en greindi frá því eftir leikinn í samtali við fjölmiðla að hann þyrfti að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna.

Króatía mætir Ungverjalandi í átta liða úrslitum mótsins í Zagreb á morgun.

Þetta er ekki síður áfall fyrir Melsungen, toppliðið í Þýskalandi, en Mandic leikur með því eins og þeir Elvar Örn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert