Pólverjar þurftu vítakeppni gegn Bandaríkjunum

Ariel Pietrasik og félagar í pólska liðinu unnu nauman sigur …
Ariel Pietrasik og félagar í pólska liðinu unnu nauman sigur í kvöld. AFP/Claus Fisker

Pólverjar sluppu svo sannarlega fyrir horn gegn Bandaríkjamönnum þegar þeir  tryggðu sér Forsetabikarinn á heimsmeistaramóti karla í handknattleik í kvöld.

Liðin unnu sinn hvorn riðilinn í keppni átta neðstu liða heimsmeistaramótsins og mættust því í úrslitaleiknum í Porec í Króatíu þar sem 25. sætið og Forsetabikarinn voru í húfi.

Bandaríkjamenn voru óvænt yfir í hálfleik, 13:11, en staðan var 21:21 eftir venjulegan leiktíma. 

Pólverjar náðu loks að tryggja sér sigur í vítakastkeppni, 3:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert