Zvonimir Srna, maður leiksins í fræknum sigri Króatíu á Frakklandi í undanúrslitum HM karla í handbolta í Zagreb í kvöld, hrósaði þjálfaranum Degi Sigurðssyni í hástert eftir leik.
„Ég veit ekki hvað við gerðum. Það voru meiri tilfinningar í spilinu gegn Ungverjalandi en í dag vorum við afslappaðri. Við förum að sofa vitandi að við vinnum til verðlauna.
Lykilatriðið var að mæta til leiks með 5-1 vörnina, sem olli þeim vandræðum. Við héldum áfram og ég vildi ekki að leikurinn tæki enda. Þetta lið hefur þroskast, styrkst andlega og öðlast reynslu,“ sagði Srna í samtali við króatíska dagblaðið Novi List.
Króatíska liðið hafði sætt töluverðri gagnrýni í aðdraganda mótsins og í byrjun þess fyrir slaka spilamennsku en er nú komið í úrslitaleikinn.
„Gagnrýnin? Hún kom til af ástæðu. Við fórum í gegnum þetta allt saman, þögðum og lögðum hart að okkur.
Sigurðsson hjálpaði okkur að vera rólegri í sumum aðstæðum og láta ekki tilfinningarnar fara með okkur. Þjálfarinn flækir aldrei hlutina. Hann er strangur og agaður. Við vinnum vel saman,“ bætti Srna við.