Dagur: Er alveg búinn á því

Dagur Sigurðsson var líflegur á hliðarlínunni í gær.
Dagur Sigurðsson var líflegur á hliðarlínunni í gær. AFP/Anne-Christine Poujoulat

„Þetta er ótrúleg stund,“ sagði Dagur Sigurðsson, þjálfari króatíska karlalandsliðsins í handbolta, í samtali við samfélagsmiðladeild liðsins eftir sigurinn á Frakklandi í undanúrslitum HM í gær.

„Ég gæti ekki verið glaðari. Þetta er ótrúleg tilfinning og mér líður eins og ég hafi spilað leikinn sjálfur því ég er alveg búinn á því,“ bætti Dagur við.

„Allir sem komu að þessum sigri eru hetjur. Leikmennirnir og allir aðrir. Þetta er mögnuð stund fyrir okkur,“ sagði Dagur enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert