Dagur Sigurðsson skrifar nafn sitt í sögubækurnar ef hann stýrir Króötum til sigurs á heimsmeistaramóti karla í handbolta á sunnudag en króatíska liðið mætir Portúgal eða Danmörku í úrslitum í Ósló.
Með sigri í úrslitaleiknum verður Dagur fyrsti þjálfarinn sem stýrir þjóð til sigurs á HM og EM sem er ekki hans eigin þjóð en Þýskaland varð Evrópumeistari undir stjórn Dags árið 2016.
Dagur yrði því ekki aðeins sá fyrsti til að vinna EM og HM sem „erlendur“ þjálfari heldur sá fyrsti til að gera það með tveimur mismunandi landsliðum.
Króatinn Vlado Stenzel er sá eini sem hefur stýrt liði til sigurs á HM sem er ekki hans eigin þjóð en hann gerði Vestur-Þýskaland að heimsmeistara árið 1978.