Vinnur stjarna Króatíu loks gullið?

Domagoj Duvnjak fagnar sigrinum á Frakklandi í undanúrslitum í gærkvöldi.
Domagoj Duvnjak fagnar sigrinum á Frakklandi í undanúrslitum í gærkvöldi. AFP/Damir Sencar

Domagoj Duvnjak, reynslubolti og stærsta stjarna króatíska landsliðsins í handbolta, fær eitt lokatækifæri til þess að vinna stórmót með þjóð sinni þegar Króatía undir stjórn Dags Sigurðssonar mætir annað hvort Danmörku eða Portúgal í úrslitaleik á sunnudag.

Duvnjak, sem er 36 ára gamall, hefur átt farsælan feril með Króatíu og unnið til átta verðlaunapeninga; fjögurra silfurverðlauna og fjögurra bronsverðlauna. Enn hefur honum hins vegar ekki auðnast að vinna til gullverðlauna.

Leikstjórnandinn var búinn að gefa það út fyrir HM 2025 að það yrði hans síðasta mót með landsliðinu og þar með verður úrslitaleikurinn síðasti landsleikurinn á ferlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert