Bestur í tólftu umferðinni

Fred Saraiva lék mjög vel með Fram gegn Vestra.
Fred Saraiva lék mjög vel með Fram gegn Vestra. mbl.is/Óttar Geirsson

Fred Saraiva, brasilíski miðjumaðurinn hjá Fram, var besti leikmaðurinn í tólftu umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Fred lék mjög vel og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína þegar Framarar unnu mjög sannfærandi sigur á Vestra á Ísafirði síðasta fimmtudagskvöld, 3:1.

Fred er 27 ára gamall og leikur í ár sitt sjöunda tímabil með Fram en hann kom til félagsins árið 2018 frá Sao Paulo RS þar sem hann spilaði í fjórðu efstu deild Brasilíu.

Meira um Fred í Morgunblaðinu í dag og þar er birt úrvalslið 12. umferðar Bestu deildar karla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert