Heather Ezell leikstjórnandi Hauka hefur vakið athygli fyrir frábæra takta í vetur. Hún brást ekki Hafnfirðingum í bikarúrslitaleiknum gegn Keflavík í dag og náði þrefaldri tvennur. Skoraði 25 stig, tók 15 fráköst og gaf 11 stoðsendingar.
„Það var kannski ekki óeðlilegt að Keflavík þætti sigurstranglegra liðið því þær höfðu unnið okkur tvisvar í vetur. En þegar komið er í svona leik þá skiptir bara máli hversu mikið þú leggur þig fram og hversu hungraður þú ert í titilinn. Við sýndum í þessum leik að við getum barist af krafti og hversu góðar við getum verið þegar við spilum okkar leik,“ sagði Heather Ezell í samtali við mbl.is eftir að bikarinn fór á loft.
Fjallað verður um leikinn í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins á mánudaginn.