Agnes María Svansdóttir var útnefnd í fimm manna úrvalslið Norðurlandamóts U20 ára í körfuknattleik sem fram fór í Södertälje í Svíþjóð.
Íslenska liðið vann til bronsverðlauna á mótinu með því að leggja Danmörku að velli í lokaleik mótsins.
Agnes María, sem leikur með Íslands- og bikarmeisturum Keflavíkur, lék vel á Norðurlandamótinu þar sem hún var með 18 stig, tvö fráköst og einn stolinn bolta að meðaltali í leik á því.