Chris Paul laus allra mála

Chris Paul fer frá Golden State Warriors eftir aðeins eitt …
Chris Paul fer frá Golden State Warriors eftir aðeins eitt tímabil. AFP/Thearon W. Henderson

Golden State Warriors hefur ákveðið að leysa leikstjórnandann þrautreynda Chris Paul undan samningi.

The Athletic greinir frá því að Paul, sem er 39 ára gamall, hafði möguleika á því að skrifa undir eins árs framlengingu á samningi sínum sem hefði fært honum 30 milljónir bandaríkjadala en er nú laus allra mála.

Hann lék aðeins eitt tímabil með Golden State og hefur á ferlinum leikið með Phoenix Suns, Oklahoma City Thunder, Houston Rockets, Los Angeles Clippers og New Orleans/Oklahoma City Hornets.

Paul hefur tólf sinnum verið valinn til þess að taka þátt í stjörnuleik NBA en hefur aldrei auðnast að vinna deildina á ferli sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert