Færir sig um set eftir 13 ár

Klay Thompson er á leiðinni til Dallas Mavericks.
Klay Thompson er á leiðinni til Dallas Mavericks. AFP/Ezra Shaw

Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Klay Thompson er að ganga til liðs við silfurlið Dallas Mavericks. 

Thompson yfirgaf Golden State Warriors fyrr í sumar eftir að hafa leikið allan ferilinn, eða 13 ár, hjá félaginu. 

Á sínum tíma með Golden State var hann lykilmaður og vann NBA-deildina fjórum sinnum. 

Bandarískir miðlar greina hins vegar frá því að hann sé á leiðinni til Dallas Mavericks sem hafnaði í öðru sæti NBA-deildarinnar eftir tap fyrir Boston Celtics í úrslitaeinvíginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert