Landsliðsmaður í Garðabæinn

Hilmar Smári Henningsson er orðinn leikmaður Stjörnunnar.
Hilmar Smári Henningsson er orðinn leikmaður Stjörnunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hilmar Smári Henningsson, landsliðsmaður í körfubolta, er genginn til liðs við Stjörnuna.

Hilmar Smári kemur til liðsins frá Bremerhaven í Þýskalandi.

Bremerhaven leikur í næstefstu deild Þýskalands en hann gekk til liðs við þýska félagið fyrir síðasta tímabil. 

Hilmar Smári var magnaður hjá uppeldisfélaginu Haukum vorið 2023 en hann var lykilmaður liðsins ásamt Orra Gunnarssyni, sem samdi einnig við Stjörnuna á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert