Paul George hefur samþykkt samningstilboð frá Philadelphia 76ers upp á 212 milljónir bandaríkjadala yfir fjögur tímabil. George yfirgefur Los Angeles Clippers eftir fimm ár.
Hinn 34 ára gamli Paul George er afburða varnarmaður og hefur verið einn albesti vængmaður deildarinnar í meira en áratug en hann er talinn passa einstaklega vel með stjörnum Philadelphia, þeim Joel Embiid og Tyrese Maxey.
76ers duttu út í átta liða úrslitum austanmegin í vor sem voru mikil vonbrigði á þeim bænum þar sem meiðsli Joel Embiid í vetur höfðu mikil áhrif á tímabil Philadelphia. Miðherjinn lék einstaklega vel áður en hann meiddist á liðþófa í byrjun árs og þau meiðsli fylgdu honum inn í úrslitakeppnina þar sem hann var skugginn af sjálfum sér.
BREAKING: Free agent F Paul George has agreed on a four-year, $212 million maximum contract with the Philadelphia 76ers, sources tell ESPN. George committed in a meeting with Sixers officials and returns East to join Joel Embiid and Tyrese Maxey in pursuit of an NBA title. pic.twitter.com/pkCfGu3hyp
— Adrian Wojnarowski (@wojespn) July 1, 2024