Íslenska U16 ára landslið drengja tapaði 81:74 gegn Eistlandi á Norðurlandamótinu í körfubolta í Finnlandi í dag.
Þetta var þriðji leikur Íslands af fimm en Ísland tapaði fyrsta leiknum gegn Noregi en vann gegn Svíþjóð í síðasta leik.
Eistland var yfir í fyrsta leikhluta, 20:10 eftir jafnar tíu mínútur en Eistland var með yfirhöndina allan annan leikhluta og leiddi í hálfleik, 34:31.
Íslenska liðið komst yfir um miðjan þriðja leikhluta, 39:38 en Eistland var með tíu stiga forskot þegar honum lauk, 56:46 og var yfir allan fjórða leikhlutann.
Patrik Birmingham var stigahæstur fyrir íslenska liðið með 20 stig og Jakob Leifsson skoraði 16 stig og tók átta fráköst.