Bandaríski blaðamaðurinn Adrian Wojnarowski hefur lagt pennann á hilluna. Woj, eins og hann er iðulega kallaður, hefur verið þekktur fyrir að vera fyrstur með fréttirnar í NBA deildinni og varpað svokölluðum Woj bombum.
Wojnarowski hefur starfað fyrir ESPN undanfarin ár en þar áður vann hann fyrir Yahoo! um árabil. ESPN bauð honum stóran samning þegar hann flutti sig til fyrirtækisins og hluti af því var Twitter reikningur Woj þar sem hann hefur dælt út stórum fréttum.
Álagið sem fylgir vinnunni er ástæðan fyrir því að hann hefur dregið sig í hlé en hann mun starfa sem framkvæmdastjóri körfuboltaliðs St. Bonaventure háskólans í Massachusetts fylki.
Yfirlýsing Woj þar sem hann kveður bransann er kölluð síðasta Woj bomban af netverjum áhangendur NBA deildarinnar munu sakna hans.
-30- pic.twitter.com/bFeFL61s1c
— Adrian Wojnarowski (@wojespn) September 18, 2024