Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson átti flottan leik fyrir Belfius Mons er liðið lagði Okapi Aalst í efstu deild Belgíu í körfubolta í kvöld, 76:69, í framlengingu.
Styrmir var stigahæstur í sínu liði með 16 stig. Þá tók hann einnig fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar á tæplega 41 mínútu.
Belfius Mons hefur farið nokkuð vel af stað á tímabilinu og er með tvo sigra og eitt tap eftir þrjá leiki.