Magnaður leikur Martins

Martin Hermannsson lék mjög vel.
Martin Hermannsson lék mjög vel. Kristinn Magnússon

Alba Berlín vann sinn fyrsta sigur á leiktíðinni í efstu deild þýska körfuboltans í kvöld er liðið rústaði Oldenburg á heimavelli, 105:70.

Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson var í miklu stuði í kvöld og hann skoraði 20 stig og gaf 11 stoðsendingar. Var hann bæði með flest stig og flestar stoðsendingar allra á vellinum, þrátt fyrir að hann spilaði aðeins í tæpar 24 mínútur af 40. 

Alba er með einn sigur og eitt tap eftir tvo leiki. Martin virðist búinn að ná sér almennilega af meiðslum, en hann hefur mikið glímt við slík undanfarin tvö ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert