Þórsarar meistarar meistaranna

Eva Wium Elíasdóttir gerði 8 stig fyrir Þór.
Eva Wium Elíasdóttir gerði 8 stig fyrir Þór. mbl.is/Óttar Geirsson

Þór frá Akureyri er meistari meistaranna í körfubolta í kvennaflokki eftir sigur á Keflavík, 86:82, á heimavelli Keflvíkinga í meistarakeppni KKÍ í kvöld.

Keflavík vann fyrsta leikhlutann 24:19 en Þór svaraði með sigri í öðrum leikhluta, 18:10. Var staðan í hálfleik því 37:34.

Þór vann þriðja leikhluta með einu stigi, 25:24, og bæði lið skoruðu 24 stig í fjórða leikhluta, sem þýddi fjögurra stiga sigur Þórs.

Amandine Toi skoraði 31 stig fyrir Þór og Madison Sutton gerði 21 stig, tók 28 fráköst og gaf ellefu stoðsendingar.

Thelma Dís Ágústsdóttir gerði 18 stig fyrir Keflavík og Agnes María Svansdóttir 17.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert