New York Knicks hefur nælt í Karl-Anthony Towns miðherja Minnesota Timberwolves í skiptum fyrir Julius Randle og Donte DiVincenzo.
Towns hefur í fjórgang verið valinn til þáttöku í Stjörnuleik NBA deildarinnar en hann hefur sitt tíunda tímabil í deildinni í vetur. Minnesota fór alla leið í úrslit Vesturdeildarinnar í vor en fjárhagsvandræði liðsins þvinga félagið til að skipta einum besta leikmanni liðsins.
New York Knicks er í vandræðum með miðherjastöðuna þar sem Mitchell Robinson er meiddur en Towns hefur þurft að spila sem framherji við hlið franska risans Rudy Gobert undanfarið. Towns fyllir því vel í skarð Robinson og Towns fær að spila sína náttúrulegu stöðu.