Stjarnan gerði sér lítið fyrir og sigraði Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur, 71:64, í úrvalsdeild kvenna í körfubolta á heimavelli sínum í Garðabæ í kvöld. Var leikurinn liður í fyrstu umferðinni.
Keflavík byrjaði mun betur og vann fyrsta leikhlutann 26:13. Stjarnan svaraði með 22:9 og 23:13 sigrum í öðrum og þriðja leikhluta og tókst Keflavík ekki að jafna í lokaleikhlutanum.
Kolbrún María Ármannsdóttir var stigahæst hjá Stjörnunni með 23 stig og Denia Davis- Stewart gerði 21 stig og tók 28 fráköst. Diljá Ögn Lárusdóttir er mætt aftur í lið Stjörnunnar eftir erfið meiðsli og hún skoraði 14 stig.
Jasmine Dickey skoraði 25 stig og tók 13 fráköst fyrir Keflavík. Thelma Dís Ágústsdóttir bætti við tíu stigum.
Umhyggjuhöllin, Bónus deild kvenna, 02. október 2024.
Gangur leiksins:: 0:10, 4:16, 8:22, 13:26, 19:28, 21:32, 31:33, 35:35, 43:36, 47:40, 53:40, 58:48, 62:52, 62:57, 65:62, 71:64.
Stjarnan: Kolbrún María Ármannsdóttir 23/7 fráköst, Denia Davis- Stewart 21/28 fráköst, Diljá Ögn Lárusdóttir 14/5 fráköst, Maria Magdalena Kolyandrova 7, Berglind Katla Hlynsdóttir 4, Fanney María Freysdóttir 2.
Fráköst: 32 í vörn, 16 í sókn.
Keflavík: Jasmine Dickey 25/13 fráköst/7 stolnir, Thelma Dís Ágústsdóttir 10, Anna Ingunn Svansdóttir 8, Anna Lára Vignisdóttir 8/7 fráköst/6 stoðsendingar, Agnes María Svansdóttir 7/4 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 6.
Fráköst: 26 í vörn, 6 í sókn.
Dómarar: Jon Thor Eythorsson, Birgir Örn Hjörvarsson, Einar Valur Gunnarsson.