Martin Hermannsson átti góðan leik með liði sínu Alba Berlin þegar liðið tapaði með fjögurra stiga mun gegn Bonn í þýsku A-deildinni í körfuknattleik.
Martin skoraði 16 stig, tók eitt frákast og gaf átta stoðsendingar í leiknum.
Alba Berlin hefur ekki byrjað leiktíðina nægilega vel og situr í 13. sæti með tvö stig eftir þrjá leiki en liðið hefur unnið einn leik og tapað tveimur.