Martin Hermannsson var stigahæstur í tapi Alba Berlin fyrir Anadolu Efes frá Tyrklandi, 86:70, í Evrópudeildinni, sterkustu deild álfunnar.
Alba Berlin er í neðsta sæti Evrópudeildarinnar með einn sigur og sex töp eftir sjö leiki.
Martin Hermannsson skoraði 24 stig, tók eitt frákast og gaf tvær stoðsendingar á 25 mínútum.