Stafsöryggi þjálfara í WNBA-deildinni í körfubolta vestanhafs er ekki mikið um þessar mundir, því félög deildarinnar hafa alls rekið sjö þjálfara á einum mánuði.
Stephanie White varð sjöundi þjálfarinn í deildinni til að fá reisupassann í október er Connecticut Sun leysti hana undan störfum í vikunni.
Los Angeles Sparks, Indiana Fever, Chicago Sky, Atlanta Dream, Dallas Wings og Washinton Mystics hafa einnig rekið þjálfara sína í mánuðinum.
Það sem gerir staðreyndina enn áhugaverðari er að það eru aðeins tólf lið í deildinni og fengu því rúmlega helmingur þjálfaranna reisupassann í sama mánuði.