Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur ákveðið að rifta samningi Bandaríkjamannsins Wendell Green, sem hefur leikið með karlaliðinu á yfirstandandi tímabili.
Vísir greinir frá.
Green samdi við Keflavík fyrir tímabilið og hefur tekið þátt í öllum fimm leikjum liðsins til þessa. Liðið hefur unnið tvo og tapað þremur.
Á tímabilinu hefur hann skorað 23 stig, tekið fimm fráköst og gefið þrjár stoðsendingar að meðaltali í leik.